Chino buxur eru mitt á milli gallabuxna og jakkafatabuxna: snyrtilegar en þægilegar. Hér eru chino buxur fyrir dömur og herra frá Asquith & Fox, Premier og fleiri merkjum, í beinu og aðsniðnu sniði og mörgum litum.
Snyrtilegar vinnubuxur
Chino buxur eru vinsælar sem starfsmannabuxur í verslunum, á veitingastöðum, kaffihúsum, hótelum og skrifstofum. Sumar eru úr efni sem hrindir frá sér blettum, sem kemur sér vel í veitingarekstri. Passa vel með pólóbol eða skyrtu með lógói.
Sjá líka allar buxur, skyrtur og snyrtilegan fatnað.


































