
Gallabuxur, gallajakkar, gallaskyrtur og annar denim fatnaður fyrir dömur, herra og börn. Sterkt og klassískt efni sem passar við allt og verður bara flottara með aldrinum.
Gallabuxur fyrir dömur og herra
Hér eru meðal annars gallabuxur frá AWDis So Denim í beinu og þröngu sniði, í mörgum stærðum og lengdum.
Gallaskyrtur og gallajakkar með lógói
Gallaskyrta eða gallajakki með útsaumuðu lógói er flottur og öðruvísi starfsmannafatnaður. Hann hentar vel fyrir kaffihús, veitingastaði, verslanir og skapandi fyrirtæki sem vilja óformlegra útlit en jakkaföt eða pólóbolir.
Denim fylgihlutir
Einnig eru hér denim taupokar og barnavörur úr lífrænu gallaefni.
Við merkjum með útsaumi eða prentun, án lágmarksmagns. Hafðu samband á info@fotomax.is.





















































































