
Innsta lagið skiptir mestu máli í íslenskum kulda. Undirbolir, undirbuxur og stuttbuxur sem halda hita, flytja raka frá húðinni og henta undir vinnufötin, í skíðin, fjallgönguna og ræktina.
Af hverju gott innsta lag?
Þegar þú svitnar í bómullarbol verður hann blautur og þér verður kalt. Góð undirföt úr gerviefnum eða merino ull flytja rakann út, svo þú helst þurr og hlýr, jafnvel þegar þú ert á fullu.
Fyrir vinnuna og útivistina
Hér eru meðal annars merino ullarundirföt frá Portwest fyrir útivinnu, æfingaundirföt frá TriDri, Spiro og Gamegear og undirbolir fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Það eru stærðir fyrir dömur, herra og börn.
Lagaskiptingin
- Innsta lag: flytur raka
- Miðlag: flíspeysa eða vesti sem einangrar
- Ysta lag: softshell eða skeljakki sem ver gegn vindi og vætu
















































































