
Íslenskur vetur kallar á réttan búnað. Hér eru vörurnar sem halda þér hlýjum frá október og fram á vor: prjónahúfur, eyrnaskjól, hálskragar, treflar, hanskar og vettlingar, flísteppi og hlýir fylgihlutir frá merkjum eins og Result Winter Essentials og Beechfield.
Vetrarvörur með lógói
Húfa, hálskragi eða flísteppi með útsaumuðu lógói er ein vinsælasta vetrargjöfin hjá fyrirtækjum. Hún er notuð allan veturinn og minnir á þig í hvert sinn. Íþróttafélög, björgunarsveitir, skólar og ferðaþjónustufyrirtæki merkja líka vetrarvörur fyrir starfsfólk, iðkendur og viðskiptavini.
Fullkomið í jólapakkann
Hlý húfa og vettlingar með nafni eða fyndnum texta er persónuleg jólagjöf sem gleður. Settu saman sett í stíl fyrir alla fjölskylduna eða allan vinahópinn.
Við merkjum með útsaumi, prentun eða DTF, án lágmarksmagns. Hafðu samband á info@fotomax.is fyrir tilboð í stærri pantanir.
























































































