Bolir sniðnir fyrir konur. Aðsniðnir stuttermabolir, bolir með V-hálsmáli, langermabolir, hlýrabolir, stuttir crop bolir og pólóbolir í fjölda lita frá Fruit of the Loom, Stanley/Stella, Bella Canvas, AWDis og fleiri merkjum.
Dömubolur með texta eða lógói
Bolir fyrir gæsunina, saumaklúbbinn, kvennahlaupið eða starfsfólkið. Við prentum eða saumum nafn, texta, mynd eða lógó á bolinn, án lágmarksmagns. Flestir bolirnir fást líka í herrasniði í sama lit, svo allur hópurinn geti verið eins.
Sjá líka herraboli, allan dömufatnað og alla boli.





























































































