Peysur með ¼ eða ½ rennilás í hálsmáli eru klassískar og snyrtilegar, og henta jafnt á skrifstofuna, í golfið og á æfingar. Hér eru peysur, flíspeysur, prjónapeysur og íþróttapeysur með stuttum rennilás frá Adidas, Nike, B&C Collection, Russell, Stormtech og fleiri merkjum.
Vinsæl starfsmannapeysa
Peysa með rennilás í hálsmáli er ein vinsælasta starfsmannapeysan. Hún fer vel yfir skyrtu eða bol og lógóið nýtur sín vel á bringunni.
Peysa með lógói
Við merkjum með útsaumi eða prentun, hvort sem þú þarft eina flík eða fatnað fyrir allt starfsfólkið, liðið eða félagið. Ekkert lágmarksmagn. Hafðu samband á info@fotomax.is eða í síma 562-5900 fyrir tilboð í stærri pantanir.
Sjá líka allar peysur, hettupeysur og íþróttapeysur.





















































































