
Starfsmannafatnaður merktur með lógói fyrirtækisins. Hér er allt sem fyrirtæki þurfa til að klæða starfsfólkið: bolir, pólóbolir, skyrtur, hettupeysur, flíspeysur, softshell jakkar, vesti, derhúfur og vinnufatnaður frá þekktum merkjum.
Af hverju merktur starfsmannafatnaður?
Samræmdur fatnaður gerir starfsfólkið auðþekkjanlegt, skapar faglega ímynd og eflir liðsheildina. Hann er líka ódýr og áhrifarík auglýsing, því fötin eru notuð utan vinnu líka.
Svona virkar þetta
Þú velur flíkina, litinn og stærðirnar og sendir okkur lógóið. Við gerum sýnishorn til samþykktar og merkjum svo með útsaumi eða prentun. Ekkert lágmarksmagn og ekkert stofngjald. Afhendingartími er yfirleitt 2 til 5 virkir dagar eftir að vörurnar eru komnar til okkar.
Fyrir allar starfsgreinar
Við klæðum verslanir, hótel, veitingastaði, iðnaðarmenn, verktaka, heilbrigðisstarfsfólk, skrifstofur og íþróttafélög. Hafðu samband á info@fotomax.is eða í síma 562-5900 og við gerum tilboð í fatnað fyrir allt starfsfólkið.






















