
Fatnaður í stórum stærðum, upp í 3XL, 4XL, 5XL og stærra. Hér eru bolir, pólóbolir, hettupeysur, háskólapeysur, flíspeysur, softshell jakkar, skyrtur og vinnufatnaður sem fást í stærri stærðum en hefðbundið er.
Allir í hópnum í eins fötum
Þegar fyrirtæki, félag eða hópur pantar merktan fatnað þurfa allir að fá flík sem passar. Með þessu úrvali er auðvelt að finna sömu vöru í öllum stærðum, frá XS upp í 5XL, svo enginn verði útundan á hópmyndinni.
Sama gæði, sama merking
Stærri stærðirnar eru úr sömu efnum og með sama sniði og aðrar stærðir. Við merkjum þær á sama hátt með lógói, nafni eða texta, með útsaumi eða prentun.
Hafðu samband á info@fotomax.is ef þú finnur ekki stærðina sem þú leitar að. Við eigum aðgang að enn stærra úrvali hjá birgjum okkar.



























































































