Vatnsheldir jakkar og regnjakkar fyrir íslenska rigningu og rok. Skeljakkar, regnjakkar með hettu, fóðraðir vetrarjakkar og 3-í-1 jakkar frá Regatta, Result, Portwest og fleiri merkjum, fyrir dömur, herra og börn.
Vatnsheldur eða vatnsfráhrindandi?
Vatnsheldur jakki er með teipuðum saumum og efni sem hleypir ekki vatni í gegn, jafnvel í langvarandi rigningu. Vatnsfráhrindandi efni hrindir frá sér léttum skúrum en getur blotnað í gegn með tímanum.
Regnjakki með lógói
Vatnsheldur jakki með lógói fyrirtækisins er vinsæll hjá verktökum, ferðaþjónustu, björgunarsveitum og öllum sem vinna úti. Við merkjum með útsaumi eða prentun, án lágmarksmagns.
Sjá líka softshell jakka, regnföt og alla jakka.


























































































