
Allt sem þarf fyrir notaleg kvöld og smá dekur. Hitateppi, rafrænir hitapokar, hitapúðar, nuddtæki, sloppar, inniskór, teppi og kósýföt sem hlýja, slaka á og gera skammdegið aðeins betra.
Hitateppi og hitapokar
Hitateppi og rafrænir hitapokar frá Terraillon hitna á nokkrum mínútum. Þú getur haft það notalegt í sófanum án þess að hækka á öllum ofnunum. Klassískir gúmmíhitapokar og hitapokar í loðnum gervifeldshlífum eru líka hér.
Nudd og slökun
Hálsnuddtæki, nuddpúðar, nuddbelti með hita og nuddbyssur losa um spennu eftir langan dag. Zen Box og Zen Rise hjálpa þér að sofna og vakna betur í skammdeginu.
Sloppar og kósýföt
Mjúkir sloppar, sherpa hettupeysur, flíssokkar og inniskór fullkomna kvöldið. Margar vörurnar má fá merktar með nafni.
Fullkomnar gjafir
Vellíðanarvörur eru gjafir sem allir nota, fyrir mömmu og pabba, ömmu og afa, vinkonuna eða þig sjálfa(n).


































