Víð snið eru allsráðandi í götutísku. Hér eru oversized stuttermabolir, peysur, hettupeysur og hlýrabolir í rúmu og afslöppuðu sniði frá Build Your Brand, Bella+Canvas, Stanley/Stella og fleiri merkjum.
Fullkomið fyrir merkjavöru
Víðir bolir og peysur eru fyrsta val margra sem hanna eigin fatalínu, hljómsveitarboli eða merkjavöru. Stór prentflötur gefur mikið pláss fyrir hönnunina.
Prentun eða útsaumur
Við merkjum með útsaumi eða prentun, hvort sem þú þarft eina flík eða fatnað fyrir allt starfsfólkið, liðið eða félagið. Ekkert lágmarksmagn. Hafðu samband á info@fotomax.is eða í síma 562-5900 fyrir tilboð í stærri pantanir.
Sjá líka þykka boli og peysur, sett í stíl og alla boli.


























































