Stafræn framköllun
Athugið að skoða myndirnar vel þegar þær eru settar inn.
Þær prentast eins og þær sjást á skjánum.
ATH AÐ LOFUNARTÍMI Á FRAMKÖLLUN EÐA STAFRÆNNI PRENTUN ER 2-4 VIRKIR DAGAR EN Á ÁLAGSTÍMA GETUR HANN VERIÐ LENGRI. EF EMAIL FYLGIR ÞÁ SENDUM VIÐ PÓST UM LEIÐ OG VINNSLAN ÞÍN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR.
Svona kemur þú stafrænu myndunum þínum yfir á pappír
1. Þú sendir okkur myndirnar yfir netið
Þú flyst í myndahugbúnaðinn með einum smelli á gula "Netframköllun" takkan hérna að ofan.
Vélarnar okkar kjósa JPG skár þannig að passaðu upp á að það sé ekki önnur skráartegund í myndasafninu.
2. Þú getur líka sett þær á minnislykil og komið með lykilinn til okkar þar sem við tökum þær yfir.
Það er auðvelt og fljótlegt er að senda myndir yfir netið í framköllun og sama verði á prentuninni hvort sem þú kemur í verslun eða sendir.
3. Apple notendur hafa kvartað yfir því að við séum ekki með gátt inn fyrir þá í gegnum okkar hugbúnað en ný uppfærsla á hugbúnaðinum okkar styður bæði PC og Apple. Ágætt er að benda þó á að líka er hægt að nota skýjaforrit eins og Dropbox.com. Þar getur þú stofnað þitt eigið gagnahólf og sent okkur leyfi til að skoða og hlaða niður myndunum þínum. Við mælum með að þú skýrir þetta hólf nafninu þínu og framköllun: Dæmi: "Jón Jónsson framköllun 104 myndir", því þá getum við sannreynt fjölda myndanna. þetta leysir talsverðan vanda. Þú þarft svo að bjóða okkur að geta skoðað folderinn og þá vísar þú boðinu á netfangið sala@fotomax.is Það eru einnig til aðrar svipaðar lausnir sem hægt er að nota við slíka yfirfærslu. Við eigum að geta nálgast myndirnar þínar í flestum forritum. Þú verður aðallega að passa að þú sért með nægjanlegt geymslumagn til að geyma myndirnar þínar því þá á þetta að geta gengið vel upp.
Dropbox og sambærilegar þjónustur eru einnig mjög sniðugar fyrir lagtíma geymslu á myndunum þínum úr símanum eða af spjaldtölvunni.
4. Þú getur líka sent okkur tölvupóst með myndunum sem viðhengi. Best er að senda myndirnar á netfangið sala@fotomax.is Rétt er þó að benda á að myndirnar verða að vera viðhengi en ekki límdar (paste) beint í póstinn. Einnig getur þessi aðferð verið tímafrek ef þú ert að senda mikið af myndum. Ef þig vantar nokkrar myndir samdægurs reynum við að bjarga því, skelltu þeim skilaboðum bara með í póstinn og við gerum okkar besta til þess að uppfylla þínar þarfir.
Öll framköllun fer fram á KODAK gæðapappír.
Lágmarksverð pöntunar er 2.490 kr.
1–50 myndir: 75 kr. pr. mynd
51–200 myndir: 54 kr. pr. mynd
201 mynd og fleiri: 49 kr. pr. mynd
Verð á stækkunum finnur þú hér.
Við höfum nokkrum sinnum fengið send batterí úr myndavélum og við beðin um að framkalla af þeim. Það getum við því miður ekki leyst :-)
ATH AÐ LOFUNARTÍMI Á FRAMKÖLLUN EÐA STAFRÆNNI PRENTUN ER 2-4 VIRKIR DAGAR EN Á ÁLAGSTÍMA GETUR HANN VERIÐ LENGRI. EF EMAIL FYLGIR ÞÁ SENDUM VIÐ PÓST UM LEIÐ OG VINNSLAN ÞÍN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR.



