Gamli góði hitapokinn, bara án þess að sjóða vatn. Þú stingur Velvet í samband, bíður í um 10 mínútur og þá ertu komin(n) með mjúkan og hlýjan félaga sem heldur hita í allt að 6 tíma.
Flauelsáklæðið er dásamlegt viðkomu. Velvet er fullkominn í sófann á köldum kvöldum, upp í rúm eða sem lítil gjöf sem hittir alltaf í mark.
- Tilbúinn á um 10 mínútum
- Heldur hita í allt að 6 tíma
- Ekkert vatn að fylla á eða hella úr
- Mjúkt flauelsáklæði
Taktu pokann alltaf úr sambandi áður en þú notar hann.





